Stjörnumerki
Þegar ég gekk með Ester Helgu þá var ég að vinna með stelpu sem var algjörlega obsessed af stjörnumerkjum. Nei þið skiljið ekki.................. manneskjan var algjörlega búin að tapa sér í málefninu. Og var að gera jarðbundnu mig vangefna. Frú Auðbjörg hefur aldrei fengið fleiri símtöl per tímaeiningu en akkúrat þarna. En víkjum aftur að gellunni. Alveg sama um hvað var rætt, alltaf byrjaði hún: "Já það er ekkert skrítið því hann er Ljón og Ljón fædd á þessu ári jarí jarí jarí......" eða var að útskýra fyrir fráskildum samstarfskonum af hverju hjónabandið hafi ekki gengið. Þær giftust allar mönnum í röngu merki fyrir þeirra merki. Og börnin, þetta var sko á leikskóla, sálgreindi hún hist og her og útskýrði alla þeirra hegðun út frá fæðingardegi. Úff bara við að rifja þetta upp blossar gremjan upp aftur. En það sem kveikti þetta hjá mér var að lesa að Billy Bob Thornton og Steingrímur J. Sigfússon eru báðir 52 ára í dag. Ég hefði viljað rökræða það við þessa gellu:) Ekki það að heilaþvegið fólk býr sér bara til líkindi og sannindi ef sannleikurinn eins og hann kemur af kúnni hentar þeim ekki. Þannig að þeir eru ábyggilega identical persónuleikar þegar búið að er kryfja þetta til mergjar.
<< Home