luxatio hugans

awakening

föstudagur, desember 02, 2005

Fíllinn


Það er gaman að segja frá því að við Sigurður Árnason ólumst bæði upp við þann misskilning, að á undan táknmálsfréttum hvert kvöld, birtist hliðarmynd af fíl. Prófíll. Það var nú ekki gott að sjá tenginguna á milli heyrnarlausra og stærsta landspendýrsins. En nú er ég fullorðin og veit betur, allavega sé ég ekki betur. En mér fannst áhugaverðast að það hafi einhver annar séð það sama út úr þessari mynd. Er kannski einhver annar þarna úti sem finnst Ísland alveg eins og Kind??

2 Comments:

At 10:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég sé líka en fíl. Hef bara aldrei haldið að þetta væri neitt annað. Sé það núna að mjög líklega eru þetta ekki fílafréttir!!!!!

 
At 8:01 e.h., Blogger Ally said...

Ja spurt var um kind en þetta er ágætt líka.........

 

Skrifa ummæli

<< Home