luxatio hugans

awakening

laugardagur, apríl 19, 2003

Bekkjasystir hans Dodda var kjörin Fegurðardrottning Reykjavíkur á dögunum sem er náttúrulega helvítis óheppni fyrir Dodda því nú er það alveg úr sögunni að fara í bekkjapartý eða bústað eftir prófin eða svoleiðis. Nú verður lagt blátt bann við því!!!! Nei auðvitað er ég að djóka mar. Ég veit alveg að ég er mest gordjös gella ever, þannig að ég sef rólega á nóttunni áfram. Annars er Erik vinur minn góður vinur hennar líka. Erna á 3. ári hún er svo sæt og skemmtileg og hún er vinkona mín. Þetta nöldrar Erik endalaust. Svo ég sendi honum sms og spurði hvort hún væri ekki alveg rosalega góð vinkona hans núna?? Hann sagði að ég væri sjúk og ætti að hætta að hafa samband við hann:( Með hverjum á ég núna að setja upp danssjóv??

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home