luxatio hugans

awakening

fimmtudagur, apríl 17, 2003

Sellófón var æði, ég hló svo ótrúlega mikið. Björk Jakobsdóttir er snillingur. Hún er með alveg rosalega útgeislun, sem náði einhvern vegin alveg til manns. Svo er hún náttúrulega viðurstyggilega sexý, ég held að maður þurfi að vera það til að höfða til beggja kynja á þennan hátt. Eða kannski ætti ég að fara að taka niðurstöðurnar úr lesbíuprófinu alvarlega???!!! Þessi sýning er möst! Strákar, hún er í náttkjól allan tímann ef þið haldið að þetta sé bara fyrir kellingar.
En svo verð ég aðeins að segja frá syni mínum sem er kannski ekki alveg hið dæmigerða barn. Hann fór með ömmu Gunnu í Bónus og hann mátti velja sér hvaða páskaegg sem hann vildi. Nú svo hann valdi sér náttúrulega Bónusegg nr. 3. Amma hans reyndi að benda honum á rekkana af Nóa-Siríus eggjunum og Auja fékk sér Nóa, en hann fékkst ekki með nokkru móti til að skipta. Barnið mitt er ónæmt fyrir auglýsingaáróðri sem dynur á börnum í barnatímanum. Hann tekur eigin ákvarðanir og stendur við þær. Dæmi um það er að hann var eini strákurinn á leikskólanum sem var ekki action man á öskudaginn, hann mátti samt velja sér búning alveg sjálfur.... Ég ætla ekki að segja ykkur hvað hann var....... Sonur minn er ENGINN HOMMI, hann er fullkominn eins og ég......

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home