luxatio hugans

awakening

miðvikudagur, apríl 16, 2003

Ég gleymdi að segja frá einu fjölmiðlaljóninu enn. Ég lenti óvart á Völu Matt í gærkvöldi. Ég var nú lengi ein af þeim sem tók upp hanskann fyrir hana því mér fannst alltaf frekar gaman hvað hún er jákvæð. En þetta endalausa sama tuð er farið að fara í taugarnar á mér. Í gær var verið að skoða einhverja dauðans eldhúsinnréttingu sem var ekki einu sinni merkileg. Þá segir Vala Matt: Já, fórstu bara niður í INNX og valdir þér þessa innréttingu!!!!!!!! Hvað meinar konan?! Átti hún von á að kerlingaruglan hefði farið og valið sér einhverja aðra innréttingu en þá sem endaði loks í eldhúsinu hjá henni. Stundum nöldrar hún bara eitthvað, til þess að nöldra eitthvað. Það er óþolandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home