luxatio hugans

awakening

laugardagur, apríl 19, 2003

Það er naumast búinn að vera páskabragur á þessu bloggi mínu, en mér sýnist enginn vera að lesa það hvort sem er. En þeir hjá DV voru að skrifa um ummæli Gísla Marteins í garð Þórunnar Lár í helgarblaðinu. SEINIR EÐA!!!! Djöfull er ég nösk á þjóðarsálina maður, ég var löngu búin að blogga um þetta. Til hvers að lesa DV? Lesið bara síðuna mína! En Helvítis, nú verð ég að fara að lesa lífefnafræði. Og það er nákvæmlega jafn ömurlegt og það lítur út fyrir að vera. En ég á 44 þjáningabræður og systur þannig að ég ætti ekki að vera að kvarta. Svo er ég búin að fá páskaegg. Árni frændi gaf mér páskaegg nr. 4, vei, vei.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home