luxatio hugans

awakening

sunnudagur, apríl 27, 2003

Djöfull verð ég fegin þegar þessar kosningar verða búnar. Það er bara horror að horfa á fjölmiðla þessa dagana. Verst finnst mér að horfa á konur í sjálfstæðisflokknum. Nú hef ég sjálf alltaf aðhyllst sjálfstæðisflokkinn mest, en þessum ágætu konum sem eru í framboði fyrir sjálfstæðisflokkinn er að takast að gera mig algjörlega fráhverfa flokknum. Hanna Birna var í Silfri Egils áðan og hún kom svo illa út, hrokafull og pirruð og fannst ekkert svaravert sem andstæðingurinn hefur að segja. Ásta Möller er önnur hörmung. Ég get ekki hugsað mér að segjast vera sjálfstæðiskona og fólk hugsar um Ástu Möller í sömu andrá og setur mig á bás með henni. Ég veit ekki mitt rjúkandi ráð, en mér finnst þetta unga fólk sem kemur fram fyrir hönd sjálfstæðisflokksins þurfa aðeins að dempa sig niður í hrokanum, allavega get ég ekki hugsað mér að kjósa þau. Ég veit ekki hvað í fjandanum ég á að kjósa!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home