luxatio hugans

awakening

mánudagur, desember 05, 2005

Hanaat

Var að lesa mér til um Filippseyjar í dag, þar sem von er á Lydiu á næstu dögum og lágmarks kurteisi er að vita eitthvað um það hvaðan hún er að koma. Allavega þjóðaríþróttin er körfubolti, en sú afþreying sem er mest stunduð á Filippseyjum er hanaat, og eru fullt að leikvöngum út um allt fyrir þá iðju.
Nú svo við Doddi fórum að ræða þetta, og hvort maður þyrfti ekki að koma sér upp hanahóp í atið. Þá myndi maður náttúrulega éta alla rólegu, blíðu hanana en láta þessa freku og aggressívu fjölga sér og ná þannig upp virkilega brútal stofni. Bara svona svo Lydiu leiðist ekki um helgar og fái heimþrá.

5 Comments:

At 10:24 f.h., Blogger B said...

Ég skal passa hanana fyrir ykkur ef þið farið norður um jólin. Eða bara þurfið að hvíla ykkur. Við Agneta hefðum bara gaman af hóp gaggandi hana.

Bergþóra

 
At 5:57 e.h., Blogger Ally said...

Bergþóra, rétt ræktaður hanahópur er ekki þannig innrættur að það sé eitthvað sérstaklega gaman að passa þá. Ja nema þú kjósir að láta gogga úr þér augun. Geðugu, gaggandi hanarnir verða étnir med det samme.

 
At 8:04 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mér finnst þetta nú það minnsta sem þið getið gert fyrir hana (Lydiu þá...).

 
At 10:46 e.h., Blogger B said...

Það er margt verra en að láta gogga úr sér augun. Það er nú ekki það versta mín kæra.

Bergþóra

 
At 11:33 e.h., Blogger Ally said...

Kona með fortíð hefur talað

 

Skrifa ummæli

<< Home