Egóblogg
Viljiði gera forvitinni konu greiða?
Viljiði segja mér, hver þið eruð sem lesið bloggið mitt og eruð í Bern í Sviss, John Hopkins medical institution, Dublin á Írlandi, Uppsala í Svíþjóð, Madrid á Spáni og Finnlandi? Þessar heimsóknir koma of oft til að vera tilviljanir og ég get ekki staðsett nokkurn sem ég þekki þarna.
16 Comments:
Ekki vera hrædd, ég ætla ekki að koma og ofsækja börnin ykkar
Sæl Allý! Verð að játa mig "seka" sem einn þessara dularfullu gesta (í Uppsala). Þar sem ég er í mastersnámi sit ég heilu og hálfu dagana við tölvuna og inn á milli skoða ég öll blogg sem mér detta í hug, veit allt um alla sem varla vita að ég er til! Frekar sjúkt áhugamál, ég veit...Kveðjur, Anna Þorbjörg
Neineineineinei ekki neitt krípí, bara gaman.
Mér fannst bara svo forvitnilegt að vita hverjir væru þarna á þessum stöðum. Hljómar þetta nokkuð eins og ég sé brjáluð yfir heimsóknunum? Það á allavega alls ekki að koma þannig út.
Allý þú ERT brjáluð!
Hulda ekki vera púkó, þannig virka bara heimasíðuteljarar.
Eða allavega site meter, hann er kannski bara extra kúl.
Ég er víst sú seka í Madrid...ég er vinkona Mæju...datt hérna inn einhverntíma í gegnum síðuna hans V.D. og hef verið föst hérna síðan, enda er þetta með fyndnari bloggum sem ég hef komist í:-)
kveðja
Íris
Hey -- smá komment á færsluna um kaupin--- fæ ég engan heiður :)
Auja ef þú ert þessi anonymous, þá ehhhhh nei eiginlega ekki;) Eða jú bara fyrir jákvæðan stuðning í báðar áttir.
Sæl Allý. Er á þriðja ári í læknisfræðinni en er að gera 3 árs verkefni á Hopkins. Tek við og við bloggrúnt dauðans þegar mér leiðist, og hef þá gaman að því að skoða blogg frá öðrum árum.
Martin Ingi
Þú hlýtur að vera fallegasta kona veraldar.
Bergþóra
Vel gert Martin!!
Ég les nú bara bloggið þitt hér að neðan...kveðja Satan.
hvurn djöfulinn varstu að kaupa kona!! brúðarkjól eða?
Hi Ally,
Aetli eg se ekki sokudolgurinn i Dublin, rakst a thig i gegnum siduna hja Moggu V og kiki alltaf odru hvoru thar sem thu ert ju alveg einstaklega fyndin, gafud og eflaust gullfalleg lika (bara svona suck up til ad tryggja oryggi tilvonandi barna)
Jón Gunnar checking in! Lít reglulega við.
Keep up da blog Allý!
Skrifa ummæli
<< Home