luxatio hugans

awakening

mánudagur, apríl 28, 2003

Ég hef líka gleymt að minnast á að ég datt inn á þessa hörmulegu ungfru island.is keppni á föstudagskvöldið. Allavega. Það var verið að krýna þessar aumingjans stelpur í snípstuttum pallíettupilsum í auglýsingahléinu á American idol, þannig að maður asnaðist til að forvitnast. Þá segir Ingvar; Þegar ég sé svona fallega konu með blóm, af því að hún var að vinna, þá fer ég að gráta. Ég stend ráðþrota frammi fyrir þessu barni sem ég á. Hann fer að grenja þegar það á að senda hann á fótboltaæfingu og hann grenjar yfir ungfru island.is. Kræst.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home