luxatio hugans

awakening

miðvikudagur, apríl 02, 2003

Ég var að segja Erik vini mínum frá því í dag hvernig hann ætti að negla konu, og halda henni hjá sér æ síðan. Trickið er að næna með smint. Já næna með smint! Frá því ég sagði Svölu vinkonu minni þetta, þá hef ég verið þekkt sem smint stelpan, hjá fólki sem ég þekki ekki neitt. Dæmi um það er þegar ég byrjaði hjá einkaþjálfara í janúar í fyrra, þá sagði Nonni, sá ágæti maður, "já, þú ert smint stelpan, Svala sagði mér frá þér" Já svona flýgur hróður manns víða. En það er gaman að segja frá því að þegar ég byrjaði í þessari einkaþjálfun þá kynnti hann mér reglurnar; mættu þegar þú átt að mæta, mættu tímanlega og gerðu það sem að þér er sagt! Eftir að ég var búin að vera hjá honum í einkaþjálfun og hann fór að fá kúnna eftir mig, þá hafði ný regla bæst við; Mættu þegar þú átt að mæta, mættu tímanlega, mættu edrú og gerðu það sem þér er sagt! Fólk gapti vitanlega við þennan lestur en hann sagði "það er ekki að ástæðulausu sem ég þurfti að bæta edrúreglunni inní" Af því fer svo önnur skemmtileg saga en hana ætla ég ekki að segja. (vísindaferð í lazersjón kom við sögu)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home