luxatio hugans

awakening

miðvikudagur, desember 14, 2005

Kæti dagsins

Haukur bekkjabróðir minn mætti, eins og lítill krakki sem er nýbúinn að fá í skóinn í fyrsta skiptið, á HNE í morgun. Í ljós kom að hann hafði ærna ástæðu til að gleðjast. Kæti hans var nefnilega tilkomin vegna þess að nýjasta plata hans og félaga hans í Dikta fékk 5 stjörnur af 5 mögulegum í Morgunblaði dagsins.
Til hamingju með þetta Hauxi.

Sjálf var ég líka kát í morgun, því við fréttum það í dagrenningu að Lydia er lögð af stað frá Fillipseyjum. Kannski maður noti síðasta tækifærið til að ryksuga í dag.

1 Comments:

At 1:58 f.h., Blogger Ally said...

Af hverju finnst mér eins og þú sért að hæðast að því, að lífið fer úr skorðum þegar maður fær ekki heimilishjálpina á réttum tíma??

 

Skrifa ummæli

<< Home