luxatio hugans

awakening

fimmtudagur, desember 15, 2005

Einmitt

greit að vera andvaka. Fór á kaffihús í kvöld með Huldu og Auju og asnaðist til að fá mér kaffibolla. En þetta var samt mjög fróðleg kaffihúsaferð. Ég og Auja fræddumst um það, að það er kona að nafni Inga hér í bæ, sem framkvæmir hluti gegn þóknun, sem við Auja höfðum bara ekki hugmynd um að væru gerðir. Hvað þá að til væri fólk sem hefði áhuga á að borga fyrir þess háttar þjónustu. Og bara til að taka af allan vafa þá er Inga ekki vændiskona, né er þetta neins konar kynlífsþjónusta sem hún býður upp á. Ja, allavega ekki kynlífsþjónusta í beinum skilningi, þótt vissulega gæti einhver fært þau rök að þetta væri ákveðin þjónusta VIÐ kynlíf. Ég var rænd sakleysi sem ég vissi ekki einu sinni að ég ætti í kvöld. Ég sakna þess sakleysis.

3 Comments:

At 4:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég hef mjög bitura reynslu af pjöllu vaxi.......get sagt þér margar sögur af því. hahah

 
At 5:36 e.h., Blogger Ally said...

Pálína þó........... ég veit ekki hver þú ert lengur.

 
At 7:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég veit nú ekki margt um p-vax en eitt veit ég þó og það er að maður er ekki mikið að ræða það á veraldarvefnum. Þaðan liggur leiðin einungis niður á við og maður endar á spjallrásum á barnalandi. Sem verður að teljast afar vafasamt.

Bergþóra

 

Skrifa ummæli

<< Home