luxatio hugans

awakening

fimmtudagur, nóvember 18, 2010

Af sænskum barnabótum

Ég fékk póst frá Försäkringskassan í gær, en það er svona TR þeirra Svensona. Hann hljómaði eitthvað á þá leið að tekin hefði verið ákvörðun um að greiða mér 1050 kr í barnabætur á mánuði með Magnúsi Gauta, auk þess fengi ég 660 krónur í flerbarnstillegg. Altso að ég á svo sjúklega mörg börn og ekki í fyrsta skipti sem sænskurinn viðrar þá skoðun við mig. Því fæ ég 3800 sek á mánuði í barnabætur, Á MÁNUÐI!!! Á gengi dagsins í dag eru þetta 62.500 ísk á mánuði eða 750.000 ísk á ári. Það væri hræsni að halda því fram að mér finnst ekki ágætt að láta sænska skattgreiðendur halda börnunum mínum uppi en hvaða rugl er þetta samt??!! Tveir læknar með fasta vinnu að fá hátt í milljón á ári í barnabætur. Kjósa sænskir kjósendur þetta yfir sig? Þegar við fluttum hingað fengum við greiddar barnabætur aftur í tímann frá þeim degi er við sóttum um kennitölur. Við vorum ekki búin að búa hérna í viku þegar við fórum að fá bréf um allt ónýtta fæðingarorlofið sem við áttum fyrir Ester Helgu og svo ítrekunarbréfin þegar við drulluðumst ekki til að nýta það. Kæru útlendingar, þiggið fé okkar sem snarast. Það er okkur kappsmál! Fæðingarorlof er 80% af launum, ekkert þak. Tannlæknakostnaður er ókeypis til 18 ára og niðurgreiddur til 25 ára. Því skal engan undra að ég var hlessa að gleraugun sem ég keypti handa Ingvari um daginn voru ekkert niðurgreidd, það er víst bara til 7 ára aldurs. Hneisa! Ég var að hugsa um að brjóta í honum nokkrar tennur til að fá gleraugnapeninginn með góðu eða illu frá ríkinu. Nei ég er að djóka.
Já svona er þetta ljúft í landi Karls Gústavs.

sunnudagur, nóvember 07, 2010

Af móðurbræðrum

Ég á þrjá móðurbræður. Þeir eru í sjálfu sér ekkert mikið eldri en ég, þannig lagað, þar sem fæðingu mína mætti flokka sem bernskubrek móður minnar sem átti heil 3 ár í tvítugt. Önnur bernskubrek eru að fæða mig á sveitabæ í Svarfaðardal í brjáluðu veðri. Þvílíkt lán að ég sé yfir höfuð til staðar að semja þessa færslu!! Jesús góður, en annars nenni ég ekki að fjalla frekar um heimafæðingar frumbyrja;) En aftur að þessum móðurbræðrum. Fræg eru ummæli Árna Þórs sem fannst ég það fallegasta sem hann hafði nokkurn tíma séð, og fannst nærvera mín á Völlum í kjölfarið notaleg svo ekki sé tekið dýpra í árina. Svo heillaður var hann að hann varð sjálfur að eignast eitt slíkt kraftaverk og fæddist því Þorleifur Kristinn árið eftir og átti faðir hans þá heil 3 ár í tvítugt. Bernskubrek á færibandi ...........
Jæja kveikja þessarar færslu var þegar ég var að skoða myndir af yngsta dýrinu hans Árna, honum Mikael Þór sem er 7 mánaða. Hann er farinn að sitja og borða og spjalla og gera alls kyns kúnstir. Þeir frændur Mikael og Magnús eru fæddir sama ár og þótt sá síðarnefndi haldi ekki haus þá er stutt í að maður sjái engan aldursmun á þeim. Það þekki ég af fyrri reynslu og rifjaðist upp fyrir mér hvað mér fannst Agla miklu stærri en Ingvar og Arnþór Atli miklu stærri en Ester Helga. Og þá sá ég annað mynstur. Þessir móðurbræður mínir sækja mikið í að eignast börn sama ár og ég. En allir þrír hafa þeir valið að fara þá leið. Mér finnst ég vera svona fyrirmynd þeirra sem hófst náttúrulega strax með fæðingu Olla 1979. Þessu fylgir ábyrgð auðvitað en ég veld henni vel. Já þetta var sagan af því.