luxatio hugans

awakening

laugardagur, desember 19, 2009

TRUE STORY!!

Ég sit gráti nær í eldhúsinu í Fótboltagötunni, 5 dagar til jóla og einsemdin og ónytjungskenndin að gera útaf við mig í vinnunni.
Þá segir minn elskulegi ofvirki eiginmaður, íklæddur svuntu með kokkahúfu og önnum kafinn við að troða gráðuosta/döðlufyllingu í svínalundir.

"Svona svona! Er þetta ekki bara þetta erfiða hálfa ár sem allir eru að tala um og gengur yfir á endanum?! Annars veit ég það ekki. Ég fitta inn. Svæfingahjúkkurnar voru að bjóða mér að vera með í innanhússtrandblaki! Annars skil ég nú reyndar ekki af hverju það vilja ekki allir vera svæfingarlæknar."

Jú, gott ef ég varð ekki aðeins minna einmana í kvart úr sekúndu við tilhugsunina um Þórodd í innanhússstrandblaki með svæfingahjúkkunum.

2 Comments:

At 1:22 f.h., Blogger Sólveig said...

Ég sé Dodda fyrir mér í svona outfitti eins og maður sér gellurnar í á Ólympíuleikum... HAHAHA. Það væri ekki í fyrsta skipti sem hann klæðist kvenmannsfötum ;)

 
At 9:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég er ekki frá því að þessi færsla hafi breytt lífi mínu varanlega og þar með staðist þær væntingar sem gerðar voru eftir síðustu færslu hér á undan.
Doddi

 

Skrifa ummæli

<< Home