Þegar ég kom heim áðan, þá beið mín Fréttablaðið niðri. Ég las forsíðuna á leiðinni upp, enda ágætt að hafa eitthvað að gera þessar fjórar hæðir. Þá rek ég augun í fyrirsögn á forsíðu: Brynja X. Vífilsdóttir: Fer
kannski á leik með Real Madrid. Hvur andskotinn. Ég sem ætlaði
kannski í sund og enn hafði enginn blaðamaður haft samband. Þegar ég svo las sjálft viðtalið var mér allri lokið. Brynja X.
fyrrum sjónvarpsþula og fyrirsæta, það veit sem sagt enginn hvað hún gerir í dag, eða þá að það skipti ekki máli. Hún
stefnir að því að opna Karen Millen búð í Madrid, hún er ekki komin með húsnæði. Hún ætlar
líklega út að borða í kvöld og
kannski á leik með Real Madrid en það þótti henni ekki líklegt. Aðspurð var
enginn afmælisdagur öðrum eftirminnilegri. Undir þetta afar upplýsandi og gefandi viðtal fór hér um bil öll blaðsíða 18. Jahérna. Þið ykkar sem haldið að ég sé bitur af því að ég sé svo ljót. Hoppið upp í r........ á ykkur. Ég er dead sexy, og verð flottari og flottari með hverju árinu. Auk þess hef ég heila sem ég get notað og hvað getur maður haft það betra en það??